Elín Hall – Vortónleikar á Fantasíu
Eftir glæsta upphitun fyrir Laufey kynnir Elín Hall einstaka vortónleika á Fantasíu við Austurvöll laugardaginn 2. maí kl. 21:00.
Með sínum einkennandi draumkennda hljóðheimi og hárbeittu textum flytur hún lög af verðlaunaplötunni heyrist í mér? ásamt nýju, óútgefnu efni sem hún hefur tekið upp í London.
Þetta verður einstakt kvöld í hjarta miðbæjarins, þar sem áhrifamikill tónleikaflutningur mætir glæsilegu umhverfi.
🎟 Takmarkaður miðafjöldi